25febrúar

Bara minna ykkur á...

123.is/elisab
25. febrúar 2008 klukkan 19:35
Elísa Björt Guðjónsdóttir
Engin athugasemd
18febrúar

11/17

Afsakið bloggleysið.

Skrapp norður á Húsavík á miðvikudaginn með henni móður minni, og var það bara nokkuð ágætt!  Tilgangurinn var að heimsækja ömmu gömlu, og var mjög gott að hitta hana, segi ekki annað!

Hitti einnig hana Söndru Björg sem býr þar núna, við skelltum okkur á tjúttið á föstudagskvöldið, og það má segja að ég hafi orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með skemmtistað bæjarins, eða öllu heldur bæjarbúa, þar sem ekki ein einasta manneskja var á pöbbnum, fyrir utan starfsfólk, og þó klukkan var gengin langt í tvö eftir miðnætti þegar við mættum á svæðið!  En þá var bara haldið heim aftur í partýstemningu sem var bara hin fínasta skemmtun.

Annars er lítið planað næstu dagana.  Vinna í dag og á morgun, ætli maður verði svo ekki að fara að íhuga að pakka niður í 7000 lítra töskuna sem ég keypti mér um daginn, ég held það nú.  Ætti samt kannski að taka upp úr töskunni eftir Húsavíkurferðina fyrst, það er alveg spurning.

Um helgina verður þó eitthvað húllumhæ, staffapartý á föstudaginn, Edda að koma í bæinn og ég veit ekki hvað og hvað!  Maður verður útúrtjúttaður og ógeðslegur eftir helgina, sem er bara í góðu lagi!

En hey!  Ég var að taka ákvörðun bara as we speak, ég ætla að færa bloggið mitt í hundraðasta skiptið á síðustu þremur árum, ætla að blogga á 123.is/elisab, finnst það skemmtilegra og svo er ég líka að borga fyrir það, og allar myndirnar mínar eru þar.  Þannig að þetta verður síðasta bloggið mitt hér.  Hvernig lýst ykkur á það?

P.S.  Er kreppa í gangi?
18. febrúar 2008 klukkan 15:20
Elísa Björt Guðjónsdóttir
1 athugasemd
08febrúar

Ég held ég þori þessu ekki

Nú styttist í brottför mína til paradísar. En hvað ef þetta er ekki paradís? Hvað ef ég finn ekki skólann minn og ekki heimili mitt því ég get ekki gert mig skiljanlega við leigubílstjórann því hann talar ekki ensku og skilur ekki þegar ég segi heimilisfangið á spænsku með íslenskum hreim?

Og hvað ef að deluxe íbúðin mín er bara einhver rottuhola og ég bý bara með hasshausum og sprautufíklum sem munu neyða mig til að taka þátt í þessum ólifnaði og brjóta upp lásinn að herberginu mínu og sprauta mig að næturlagi þegar ég er í fastasvefni?

Er ekki sagt að maður eigi að búast við því versta? Þá verður maður ekki fyrir vonbrigðum :)

Það eru bara 26 dagar í þetta.

Svo er það eitt. Það er eins gott að brottför frá Keflavík airport verði á réttum tíma svo ég nái nú örugglega vélinni frá London til Valencia! Það má ekki vera vont veður eins og er núna, fullt af fólki er búið að bíða í Leifsstöð alveg heillengi því flugið þeirra hefur tafist um aðeins sólarhring. Ég má ekki lenda í því. Eru það ekki raunhæfar áhyggjur?

Svo veit ég ekki enn hvar ég á að búa fyrstu dagana í Valencia, þar sem kallinn sem á íbúðina mína is on a holiday sagði Vicky úr skólanum og hún hefur því ekki getað spurt hann hvort ég megi fara strax í íbúðina. Ætli maður skelli sér ekki bara á hostel þá, það er örugglega stuð.

21 dagur þangað til ég fer til Reykjavíkur.


Ég veit nú ekki alveg hvað ég ætla að gera í Reykjavík í næstum 5 daga, nema að djamma á föstudeginum og laugardeginum. Annars er ég víst að fara á leikrit að sjá Jesús Krist Ofurstjörnu. Í einhverjum enskuáfanganum lét Ingibjörg kennari okkur horfa á einhverja uppfærslu af leikritinu eða kvikmynd eða eitthvað og mér var ekkert of skemmt. En Edda sagði að þetta væri gott stöff. Svo er ég líka að fara á tónleika með Hjálmum/Hjálmari. Ég held ég þekki bara eitt lag með þeim, sem mér finnst reyndar ágætt, þannig að það er spurning hvernig maður fílar það. En tónleikarnir eru víst í tilefni bjórdagsins, eða að það eru 10 ár síðan bjórbanninu var aflétt þannig að það hljóta að verða fljótandi veigar sem ég get dreypt á, og þar af leiðandi skemmt mér konunglega :)

Meira veit ég ekki hvað ég ætla að gera í borg óttans. Kannski maður skelli sér í keilu? Fór í fyrsta sinn síðast þegar ég var stödd þarna og mér fannst það ógeðslega gaman.




Ég hef ekkert að segja fólk! Nema það að ég er ástfangin. Varð ástfangin eftir drauminn sem mig dreymdi í fyrri nótt. En ég er hrædd um að sú ást er ekki endurgoldin þar sem að hann veit ekki að ég er til og að hann er karakter úr sápuóperu. Hér er hann:



Eruði að átta ykkur á hvað hann er fallegur?

Þetta er semsagt Antonio Sabáto Jr. Ég var samt ástfangin af persónunni sem hann leikur í Glæstum Vonum, Dante Damiano. Það er gaman að segja frá því að kappinn á afmæli bráðum, eða 29.febrúar! Er að spá í að senda honum fan mail og biðja hann um að giftast mér.

Ég veit, ég á mér ekkert líf! Ekki gera grín að mér.

08. febrúar 2008 klukkan 15:26
Elísa Björt Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
02febrúar

LOL

Hef ekkert að segja, langaði bara að deila þessu með ykkur, busavikan á Laugum 2003, niiiiiice!

02. febrúar 2008 klukkan 18:51
Elísa Björt Guðjónsdóttir
1 athugasemd
23janúar

HORSE SHIT

Og hana nú!!

Gengi gjaldmiðla

Bandaríkjadalur USD 67,11 kr.
Evra EUR 97,26 kr.
Sterlingspund GBP 130,89 kr.
Kanadadalur CAD 64,75 kr.
Dönsk króna DKK 13,055 kr.

Þetta er ekki gott!  Evran hefur nákvæmlega 42 daga til að jafna sig!  Þetta hækkar skólagjöldin mín alveg helling, og það er no good.  Mig minnir að evran hafi verið rúmar 80 krónur þegar ég fór til Spánar árið 2005.  What is up with the universe!!

Ég velti því oft fyrir mér, hvað er það eiginlega sem veldur því að gengið fer til fjandans, kreppur líta dagsins ljós og verðbréfamarkaðir fara hraða leið til helvítis?  Ég viðurkenni fáfræði mína á þessu sviði.

Annars er ekkert að frétta, ekki frekar en fyrri daginn.  Nema það að Heath Ledger er dáinn.  Það er svo skrýtið, þegar einhver celeb sér ljósið þá finnst manni eins og maður hafi misst einhvern sem maður þekkti.  Kannist þið ekki við þetta?


Myndarlegur fýr!  Mér fannst hann allavegana sætur með krullurnar sínar í 10 things I hate about you.

Á morgun hefst 7 daga vinnutörn hjá mér.  Verð að segja eins og er að ég held það verði barasta ágætt.  Tíminn og dagarnir líða þá hraðar og mér leiðist ekki eins mikið.  Það verður að segjast að mér hundleiðist að hangsa svona endalaust.  Vaki frameftir nóttu, sef eins lengi og ég get svo það sé minna eftir af deginum til að hangsast, reyni svo að finna mér eitthvað að gera, þrífa, kíkja í tölvuna og skoða þá öll blogg, facebook, myspace og allar fréttasíður svona 300 sinnum á dag.  Hef tekið upp á því að byrja að lesa aftur mér til gamans.  Kláraði eins og eina bók í dag, þarf að finna mér nýja bráðum.

Talandi um bækur!  Magga!  Ég veit þú lest þetta blogg, farðu nú að hunskast til að you know what!  Mundu, ég veit hvar þú átt heima, ská á móti mér.  Ég veit líka hvar þú vinnur.  Múahahahahahaha Svalur

Hér með ætla ég að slútta þessari færslu.  Eigið þið góða nótt elskurnar!

        I'm not into working out. My philosophy is no pain, no pain.
                                                                                                George Carlin

23. janúar 2008 klukkan 01:57
Elísa Björt Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
15janúar

15.janúar 2007

Úps, soldið langt síðan ég bloggaði síðast! Jæja, það er allt í lagi.

Enda lítið merkilegt búið að gerast hjá mér síðan síðast.

Skrapp til tannlæknis á föstudaginn. Ég ætla aldrei aftur til tannlæknis. Mér er ennþá illt!

Ég fór semsagt að láta rífa úr mér eins og tvo endajaxla því mér var tjáð að þeir ættu sér enga von upp í mínum kjafti. Þannig að ég mætti glöð í bragði klukkan hálfþrjú á föstudaginn, til í tuskið. Eftir klukkutíma labbaði ég út ekki eins glöð í bragði. Þótt ég hefði verið glöð í bragði þá hefði það ekkert sést því ég var þreföld í framan út af tvöföldum skammti af deyfingu (virkaði ekki nógu vel einn skammtur) og mikils hamagangs sem hafði átt sér stað í mínum munni. Þeir voru víst ekkert lausir blessaðir jaxlarnir.



Hér eru tækin sem eru notuð við jaxlatöku

Þannig að ég lá bara lárétt þessa helgina, að deyja úr sjálfsvorkunn og hungri, en ég á sem betur fer yndisgóða mömmu sem stjanaði við mig og vorkenndi mér um helgina, já, það er gott að eiga góða að!

Annars er maður bara brattur. Geri varla annað en að sofa og hangsa eitthvað heima hjá mér, fékk miklu minni vinnu en ég bjóst við, ekki sátt með það. Þannig að ef einhverjum vantar manneskju í afleysingar eða eitthvað, bara hafa samband! ;)

Talandi um, er að fara að vinna bráðum, þannig að segjum þetta bara gott!

Bless
15. janúar 2008 klukkan 15:23
Elísa Björt Guðjónsdóttir
5 athugasemdir
04janúar

Nýtt ár

Jájá ég veit það er langt síðan ég bloggaði blablabla.  Stundum nenni ég ekki að blogga en finnst leiðinlegt þegar aðrir nenna því ekki.

Ég má til með að segja ykkur að ég er búin að panta mér flug til útlanda.  Nánar tiltekið miðvikudaginn 5.mars, sem er bara eftir 61 dag!  Flýg fyrst til London og þaðan til Valencia.  EN það er einn hængur á.  Flugið mitt til London er klukkan 07:15 og venjan er að mæta tveimur tímum fyrir flug, þannig að ég þyrfti að vera mætt 05:15.  Hvernig í andskotanum á ég að komast út á völl um miðja nótt?!

Ef einhver nennir að skutla mér rúmlega 4 um nóttina miðvikudaginn 5.mars þá væri það alveg frábært!  Ég skal borga bensín!

Svo er spurning hvort maður hafi efni á þessu öllu saman, fæ því miður ekkert að vinna neitt of mikið það sem eftir er, vona bara að það breytist og einhver samstarfsfélagi minn verði ógeðslegur veikur geðveikt lengi eða eitthvaðþannig að ég fái að vinna meira :)

Annars hef ég ekki mikið að segja.  Var að henda inn myndum í nótt, nokkrar myndir frá útskriftinni, og svo djamm það kvöld, og djömmin 22.des, 26.des, 28.des og 31.des.  Þetta er allt í sama albúmi, var ekkert að nenna að skipta þessu niður.  Þið vitið hvar þetta er, 123.is/elisab.

Það var reyndar eitt sem ég var að spá.  Ætti ég að byrja að blogga á 123.is síðunni?   Ég meina ég borga 2990kr á ári fyrir hana og allar myndirnar mínar eru þar, ég veit ekki alveg, er smá áttavillt.  Hvað finnst ykkur?

Segjum þetta gott í bili.

04. janúar 2008 klukkan 16:01
Elísa Björt Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
25desember

Jólajól

Hvernig var gærdagurinn hjá ykkur?

Minn var bara nokkuð góður, segi ekki annað.  Er alveg þrælánægð með gjafirnar, og þá sérstaklega þessa:



Svona fínt tæki fékk ég frá minni ástkæru móður.  Hún er sniðug konan, pakkaði kassanum inn í það sem ég hélt að væri einhver ný flík, og nældi hana saman svo hún myndi ekki detta í sundur, ég var voða spennt að þreifa á þessu, svo sé ég þegar ég er búin að taka nælurnar í burtu að þetta var eldgömul kápa af mér.  LOL!!

En eruð þið að átta ykkur á því að það eru bara 76 dagar þangað til ég byrja í skólanum..  Ég byrjaði að telja í 127.. ótrúlega fljótt að líða!  Ég þyrfti að fara að panta mér flug.. veit ég hef sagt þetta áður..

Það verður örugglega frekar skrýtið að þurfa ekki að vakna á morgnana eftir áramót til að hunskast í menntaskólann.. nú er bara vakað til 3, sofið til 2 og kannski vinna stundum klukkan 4..   Letilíf dauðans!  En ég er þó alveg ofurfegin að ég sé kominn með hvítu húfuna á hausinn.. jah hún er þar ekki núna í augnablikinu, en hún er komin í hús.

Ég fékk líka fullt af flottum gjöfum á útskriftardeginum, og eru öllum þeim sem gáfu mér færðar þakkir fyrir.  Svo var farið dúndurfínt út að borða á Hótelið þar sem sumir drukku kók fyrir ALLAN peninginn.. og Ákavíti er klárlega ekki málið.

En jæja, nú nenni ég ekki að skrifa meir, ætla að fara að hlusta á tónlist í nýja tækinu mínu, takk mamma :)



"Sometimes you wanna go where everybody knows your name"


25. desember 2007 klukkan 17:51
Elísa Björt Guðjónsdóttir
4 athugasemdir
19desember

Ich bin ein Student!

Brilleraði þó ekki í þýskunni eins og sumt fólk gæti haldið með fyrirsögninni! :D

En ég er ekki frá því að þetta sé að hafast hjá mér, seint klára sumir en klára þó!  Er með svona glimrandi fínar einkunnir og er bara nokk sátt með sjálfa mig. 




Annars er lítið að frétta.  Margir vinir og vandamenn að koma heim um jólin og það þýðir bara eitt: Djamm.  Ég hlakka svo til að djamma djamma djamma, hef verið óviljug í hálfgerðu bindindi í vetur, ekki gaman :(

Svo eru bara 82 dagar í 10.mars, þyrfti eiginlega að fara að panta mér flug út hið snarasta, vinkonur mínar sem eru að koma að heimsækja mig viku eftir að ég kem eru búnar að panta, en ekki ég, neinei.

Annars er Ísland dýrast í heimi.  54% dýrara að búa hér en í Bandaríkjunum.  Sjæsen!!  Það er bara eins gott að flýja þessa eyju út í ballarhafi hið snarasta, og fara til heitu landanna.  Það ætla ég að gera.

Ég veit ekki alveg hvað ég að skrifa meira um, skuldaði helgarblogg sem kemur hér á aðfaranótt miðvikudags.  Það verður bara að hafa það!

En það er þó eitt sem ég var að pæla í.  Nú á ég það til að góna á Dr. Phil á Skjá Einum, og er það ágætis afþreying.  En það sem ég var að pæla í er að konan hans Dr. Phil, hún Robin, er ALLTAF í áhorfendasalnum.  Er hún ekki í vinnu eða á sér líf eða eitthvað?  Kannski borgar Dr. Phil henni fyrir að sitja þarna og veita sér andlegan stuðning, maður spyr sig.



Spurning hvað gerist inn í hjarta hennar Robin.



Hér eru svo Dr. Phil og frú á brúðkaupsdeginum. LOL!!!

Hef þetta ekki mikið lengra, kominn tími til að hætta að skíta á kostnað skattborgara.
19. desember 2007 klukkan 01:23
Elísa Björt Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
11desember

I will survive




Bara láta vita að ég lifi.  Hef lítinn tíma til að blogga í vikunni, skal koma með eitt heitt um helgina.
11. desember 2007 klukkan 18:49
Elísa Björt Guðjónsdóttir
2 athugasemdir

Reykjavík!

Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective Funny Images, Tattoo tricking a butterfly

Innskráningar kubbur

Valencia baby!!

Who is?

  • Nafn: Elísa Björt Guðjónsdóttir
  • Netfang: elisabjortg@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Atvinna: Transponster
  • Hjúskaparstaða: Ég er einstæðingur
  • Um mig: Ég er bara ég! Er í skóla, er líka í vinnu þar sem ég er titluð stuðningsfulltrúi, hef þó enga menntun á því sviði! Annars reynir maður bara að hafa gaman af lífinu í góðra vina hópi, þýðir ekkert annað :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...